22 og fullorðin

Ég verð að halda því fram að ég sé fullorðin, þó ég sé ekkert gífulega hrifin af því. Ég verð reyndar 23 í desember en þeir voru ekkert frekar að halda því fram að 23 ára einstaklingar væru fullorðnir heldur! Ég er flutt út, rek bíl, vinn og er í háskólanámi. Ég tek fulla ábyrgð á sjálfri mér og ég er fullorðin. Hvað annað telja þeir að sé að vera fullorðin?
Að ég mætti ekki fara og tjalda einhverstaðar nema í fylgd með "fullorðnum" finnst mér kjánalegt. Ég veit um fjölskyldur þar sem annar fullorðni einstaklingurinn nær ekki 23 ára aldri, dugar þá sá eldri til að vera fullorðinn? Er maður fullorðinn þegar maður er orðinn 23 því ekki heyrðist mér það á fréttinni.

"eingöngu fyrir 23 ára og eldri þessa umræddu helgi, nema viðkomandi séu í fylgd með fullorðnum"

Hvort þetta er bara illa orðað veit ég ekki en þetta kemur allavega kjánalega út. Ef 23 er fullorðið gætu aldurslega óheppnir einstaklingar bara hringt í eilítið eldri vini sína og beðið þá um að vera fylgdarmenn sínir. Já og það má ekki mismuna þeim sem eru einhleypir...


mbl.is Yngri en 23 ára bannað að tjalda nema í fylgd með fullorðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki nærtækasta dæmið...

...því Thom Yorke tók líka upp lag með engri annarri en Björk, líka árið 2000. Á soundtrackinu fyrir myndina Dancer in the Dark er lagið sem þau tóku upp sem dúett, I've seen it all. Það er meira að segja alveg massagott lag eftir hana, Sjón og Von Trier að mér skilst. Í myndinni syngur Thom reyndar ekki á móti henni enda er sú útgáfa ekki alveg, humm, jafnm góð enda er Thom Yorke klárlega einn af uppáhalds tónlistarmönnunum mínum.
mbl.is Thom Yorke vildi ekki vinna með McCartney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forgangsröðun

Þetta er klárlega forgangsröðun að mínu skapi. Það hafa greinilega allir keppt að sama markmiði þarna, að fólk fái bjórinn sinn. Samt er ekkert minnst á það magn af peningum sem lestarfyrirtækið hefði tapað á því að ná ekki að selja fótboltabrjáluðum þjóðverjum bjór í lestarferðinni. Það margborgaði sig ábyggilega fyrir fyrirtækið að reyna að redda þessu...
mbl.is Lestin stöðvuð vegna bilaðrar bjórdælu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...þar sem hvað?

Það er farið að fara nett í taugarnar á mér að hálfskrifaðar greinar fari í birtingu á mbl.is. Þó þetta sé nú ekkert sem ég missi svefn yfir, þó ég hafi ekki fengið að vita hvernig greinin átti að enda, er þetta algjör óþarfi og mesta rugl. Er einhver sammála mér eða er ég kannski eina manneskjan sem leiðist það mikið að ég nenni að láta þetta fara í taugarnar á mér?
mbl.is Afhenti páfa trúnaðarbréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæludýr

Fékk mér eitt stykki gæludýr að hætti veraldarvefsins:

  

Nenni engu í augnablikinu, byrjuð að vinna og svoleiðis. Reyni að skrifa eitthvað skemmtó fljótlega. Þangað til skuluði njóta Millie.


Próflok

Nú eru prófin jú búin og ég virðist vera komin í sumarfrí. Þetta verður nú ekki langt frí hjá mér því ég byrja að vinna á mánudag sem þýðir að ég verð orðin úrvinda næstu helgi. Úrvinda og niðurrignd því það á víst að rigna alveg slatta í vikunni. Annars er ég ekki í mikilli pásu í dag því ég ætla að taka svolítið til í herberginu mínu, amk. þannig að maður geti gengið þvert yfir herbergið án þess að stíga á eitthvað en það hefur ekki verið hægt síðan einhverntíma fyrir próf. Ég ætla líka að baka eitthvað gúmmelaði til að fara með til Kela kalls í kvöld fyrir júróvisjon/kosninga thingy.

Ég er líka búin að kjósa. Ég er í Vinstri-Grænum og er búin að vera á fullu undanfarið að taka við símhringinum frá þeim og öðrum. Aðallega frá þeim samt. Helgi er búinn að vera sérstaklega duglegur að hringja í mig. Hann er alveg rosalega hress hann Helgi en mjög þrjóskur líka, hann hringdi bæði í gær og í dag. Í gær til að spurja hvort ég vildi selja happdrættismiða, ég sagðist vera upptekin í dag (sem er satt) en sagði ekkert meira um það. Í morgun hringdi hann svo aftur og það fysta sem hann spurði var hvað það væri sem ég væri að fara að gera svona mikið í dag því hann hefði fattað að ég svaraði honum ekki í gær þegar hann spurði hvað það var. Þar sem hann virtist ekki vera týpan sem tæki "taka til" sem fullgilt svar þá sneri ég mig einhvernveginn út úr því að svara...aftur. Haldiði að hann hringi aftur á morgun?

Heiða er með Ruin my day með Jon Brion á heilanum.


1. Cut a hole in a box

Var að rekast á gjafahugmynd aldarinnar á netinu:

1. Cut a hole in a box.
2. Put your junk in that box.
3. Make her open the box, and thats the way you do it.

Jújú, þetta er nýjasti smellurinn með Justin Timberlake, My dick in a box! Sexy back hvað? Dick in a box er málið. Þið getir tjékkað á myndbandinu -hér-!

Svo ef að dömurnar vilja endurgjalda greiðann þá er komin lausn fyrir dömurnar:

1. Take out a box.
2. Cut a door on the box.
3. Put your bunny in the box.
4. Open the door to your box.
5. Let him admire your box.

My box in a box er spoof af SNL myndbandinu og alveg ágætt sem slíkt. Skoða -hér-. Gangi ykkur vel með framkvæmdir.


Vanþakklæti?

Hann ætti bara að vera þakklátur fyrir að vera ekki að deyja. Hvers virði er húseign í samanburði við lífið? Svo er það ekki læknunum að kenna að hann hætti að borga af húsnæðisláninu sínu, það var klárlega bara hans eigin heimska. Ég held að amma mín hefði hoppað hæð sína í loftu ef að læknarnir hefðu sagst hafa gert mistök og væri ekki með krabbamein.

Annars held ég að þetta hafi verið nett vandræðaleg stund fyrir lækninn sem þurfti að segja honum fréttirnar. Hehe, smá djók, þú ert ekkert að deyja. Fyrsti apríl!


mbl.is Dauðvona sjúklingur sem eyddi aleigunni var ranglega greindur með krabbamein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryllingssagan mín um tímapantanir hjá ofnæmislækni

Ég er ofnæmisgemsi. Ég er með ofnæmi fyrir grasi, fíflum, súrum, birki, myglu og tonni af allskyns hlutum. Þetta gerir það að verkum að sumarvinnan mín verður á tímabilum algjört helvíti en þar sem peningar skipta miklu þegar maður er fátækur námsmaður þá hendir maður vel borgaðri vinnu ekki frá sér vegna nefrennslis, stanslausra hnerra, táraflóðs og annarra óþæginda...er það nokkuð?

Síðastliðið sumar var ég stundum við það að gefast upp. Mér varð oft hugsað til ofnæmislæknisins míns sem hefði uppi fyrirætlanir um að gefa mér ofnæmissprautur þegar ég flytti aftur heim en þar sem ég kom heim svo seint (í lok maí) þá þýddi lítið að hugsa um það. Tók bara gagnslausu töflurnar mínar og notaði neseril eins og ég væri á samning hjá fyrirtækinu sem framleiðir það.

Ég var hinsvegar ákveðin á því að láta þetta ekki ganga svona næsta sumar. Þessvegna hringdi ég í febrúar (eða byrjun mars, man ekki 100%) í Læknasetrið og bað um tíma hjá ofnæmislækninum mínum. Ég var reyndar ekki bara að hugsa um sumarofnæmið heldur var ég búin að vera nokkuð slæm af kvefi í margar vikur og vissi uþb. hvað var að því þetta hefur komið fyrir mig áður. Þegar ég hringdi gat afgreiðsludaman samt ekki látið mig fá tíma fyrr en seint í júní sem gekk engan veginn upp hjá mér, ég var það slæm. Þá bauð hún mér upp á þá ágætu þjónustu að láta lækninn minn hringja í mig þriðjudaginn á eftir og tala við mig. Þetta þáði ég með þökkum og þegar læknirinn minn hringdi þá lét hún mig á sama lyfjakúr og ég hafði fengið áður og sagði mér bara að panta fyrsta tímann sem ég gat útaf ofnæminu.

Þegar ég talaði við lækninn var ég hinsvegar í vinnunni og átti eftir að bera út hálfan Digranesveginn og nokkrar litlar götur til viðbótar og stóð út í rigningunni holdvot. Dreif mig þessvegna bara af stað að klára að bera út en þegar ég var búin var orðið of seint að panta tíma. Daginn eftir gleymdi ég því en strax á fimmtudagsmorguninn hringdi ég og fékk þau svör að það væri búið að loka fyrir tímapantanir hjá lækninum mínum og það væru hvort eð er ekki lausir tímar fyrr en í byrjun júlí. What? Hún var að segja mér að panta tíma? Bömmer, hringdu aftur um miðjan maí.

Ég fór á lyfin og hugsaði ekki mikið um þetta fyrr en í fyrradag þegar ég hringdi og ætlaði að panta tíma. Ég vissi svosem að það væri ekki kominn miður maí en hell, ég ætlaði sko ekki að láta skella því á mig að það væri búið að loka aftur fyrir tímapantanir. Þið getið þessvegna ímyndað ykkur hvað mér brá þegar hún sagði að það væri lokað fyrir tímapantirnar. Jæja. En mér var sagt að hringja í maí og að ég gæti þá fengið tíma í byrjun júlí? Ha? Er hún í sumarfríi allan júlí? Já ég geri mér grein fyrir að læknar fara líka í sumarfrí en það verður einfaldlega of seint fyrir mig að fá tíma í ágúst, ég verð dáin þá. Nújá, er ykkur sama þó ég deyji? Góð þjónusta.

Konan sem ég talaði við var mjög þolinmóð við mig og virtist finna til með mér. Hún gat hinsvegar ekki troðið mér inn neinsstaðar, sem var sárt. Ég aftur á móti var búin með mína þolinmæði og var hálfgert farin að brotna niður í símann þegar ég sá fram á hræðilegt ofnæmissumar. Ég náði hinsvegar að stynja upp að ég færi þá bara með mín viðskipti einhvert annað því þetta væri bara engin þjónusta. Hún stakk þá upp á þeirri snilldar leið að læknirinn gæti hringt í mig næsta þriðjudag. Ég hélt ekki búin að því einusinni og hvert kom það mér í tímapöntunum? Alla leið yfir í ágúst. Í fysta skiptið sem ég hringdi hefði ég amk. getað fengið tíma í lok júní þó það hefi engann veginn verið nógu gott fyrir mig.

Nú var símadaman að verða svipað ráðþrota og ég og farin að hálf bölva þjónustu síns eigin fyrirtækis. Við komumst síðan að þeirri niðurstöðu að kannski ég ætti bara að fara til annars læknis en þau eru með fleiri ofnæmissérfræðinga á sínum vegum. Ég þáði það með þökkum. Viljiði vita hvenær ég fékk tíma hjá nýja lækninum mínum? 22. maí. Ég þarf að bíða í hálfan mánuð vs. fram í ágúst hjá hinum lækninum. Það er náttúrulega ekki alltaf stuð að skipta um lækna en hell, ég hreinlega hlakka til að hafa lækni sem ég þarf ekki að vita með hálfs árs fyrirvara hvenær ég þarf á þjónustunni að halda!

Ég vil hrósa konuninn sem vann í símanum þegar ég hringdi fyrir að vera jafn hjálpfús og hún var. Ég veit ekki hversu margir hefðu verið jafn hressir í símann við eitt stykki Heiðu á barmi taugaáfalls!


Hefur strætó efni á því?

Vil taka það fram að mér líst einstaklega vel á þessa sýningu. 

Bara að velta því fyrir mér því alltaf eru þeir að hækka fargjöld og skerða þjónustu. Mér er farið að líða eins og ég gæti tekið leigubíl í skólann og komið í sama stað niður peningalega séð, svo ekki sé minnst á að ég þyrfti að ganga styttra og bíða minna. Svo væri aldrei aftur keyrt framhjá mér þar sem ég stend úti í rigningunni að bíða. Þetta er kallað þjónusta. Kannski ætti ég bara að kaupa mér bíl?

Svo að spandera pening í svona risadúkku (sem mér líst annars bara ágætlega á) finnst mér sárt. Fólkið sem notar strætisvagna hér heima er upp til hópa ekki ríkt, námsmenn, útlendingar og börn. Þetta fólk er rukkað morð fjár fyrir glataða þjónustu og svona þakkar fyrirtækið fyrir að þú hafir skipt við það (því þú hafðir svo mikið val!). Þá vil ég heldur fá endurgreitt fyrir þá daga sem ég mætti of seint í skólann því að strætóbílstjórinn sá sér ekki fært að stoppa eða þegar ég mætti og beið og beið eftir vagni sem kom ekki fyrr en eftir 35 mín þó að hámarks biðtími ætti í raun að vera 20.

 Amk. vil ég ekki heyra Strætó bs. kvarta yfir að svo fáir noti "þjónustuna" þegar það eina sem þeir gera stanslaust er að slá á puttana á þeim sem nota hana með endalausum verðhækkunum.


mbl.is Risessan arkar um Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband